29.06.2009 15:15:01 / strongest
Evrópumeistaramót WPF í kraftlyftingum, bekkpressu og réttstöðulyftu 2010.
Þá er það orðið ljóst.
EM wpf á næsta ári verður haldið á AKUREYRI. Þetta verður geðveikt.
Ég stefni á að halda mótið í Íþróttahöllinni og vera þar með fysrsta flokkst upphitunaraðstöðu. Mótið stendur í 3 til 4 daga og er stefnan að reyna að halda lokahóf eftir mótið. Það er mikil vinna framundan en þetta verður magnað.
Ég hef sett það sem stefnu að ég vil fá amsk 40 lyftara frá Íslandi á mótið, enda ekki oft sem vona tækifæri bjóðast. Þar af vona ég að 10 til 15 þeirra geti verið heimamenn frá Akureyri. Fleiri eru auðvitað velkomnir, enda eigum við að mæta þarna með stórt lið í power, bekk og deddi og vinna allar greinar. Við erum stór þjóð í power og eigum að sýna það á heimavelli þarna.
Farið að skoða þetta, kv Fossdal.