Vá hvað ég sökka við að halda þessu bloggi úti orðið. Finnst samt gaman að sjá hvað það koma margir hingað á dag jafn vel þó ég nái ekki að uppfæra nema á tveggja mánaða fresti.
En já ég fór sem sagt til USA og keppti þar með fínum árangri, með total uppá 405-320-347,5=1072,5 sem er personal best í deddi og totali. Ég vann flokkinn minn og varð þriðji á stigum.
Sömu helgi var Íslandsmótið í bekk, og Bollan fékk hornið mitt til geymslu í eitt ár, en ætli ég reyni ekki að taka það af honum á því næsta, ef America cup verður ekki á sömu dagsettningu eins og í ár, því það er búið að bjóða mér og Valda báðum þangað.
Annars er nóg framundan. Eins og ég hef áður talað um þá er HM wpf í Las Vegas, en svo hefur bæst við EM wpc í Finlandi í júní. Ég hef ákveðið að fara þangað og Ingibjörg með mér, til að keppa, til að kynnast Ano og Minnu betur en þau eiga Go Metal sem ég er með umboð fyrir hérna heim.
Íslenska liðið ætlar sér mikið á HM í haust, en það verður samt erfitt því Rússar og Bandaríkjamenn, ásamt Írum og Bretum munu senda þrusu góð lið á mótið, en það verður ekkert gefið eftir. Ég, Bollan, Ingibjörg, Palli Fermeter, Valdi Kerfis, BIG BEN, Kári Köttur, Ingvar Ringo, Eyjó Krókó, Kiddi, Tóti Stallone og pottþétt margir fleiri sem ætla að fara. Þetta verður GEGGJAÐ.
Ég ætla að setja geðveikina í gang og stefna á að beygja 455 (1000 pund) pressa 365 (800 pund) og dedda 365 (800 pund) eða 1185 kg (2600 pund) Sem væri þá í topp 10 totölum allra tíma í heiminum (held að Jani hafi verið í 11 sæti með 1180 og ég veit að þá á Siders líka 1180(Jani í 2ply og Siders í 1 ply)). Verið nú dugleg að gagnrýna hvað ég ætla mér mikið og segja mér að þetta sé ekki séns... ég lifi á því á æfingum að vita að fólk hefur ekki trú á mér

Valdi Kerfis hringdi í mig í nótt og bústaði andan hrikalega upp, og fann ég fyrir söknuði að vera ekki enþá að æfa með þessum hópi sem æfði saman í Silfur Sporti. Það voru hrikalega góðir tímar.
Sjáumst hress á IKF Íslandsmótinu, kv FOSSDAL