|
|
18.01.2010 21:02:26 / strongest
Við hér í Viking Gym höfum verið að bjóða upp á Powerburn sem er hrikalega vinsælt í Super Gym í Hafnarfirði. En þá er þátttakan hjá okkur bara hæfileg, og ákváðum við nokkrir strákarnir því að slá til og taka einn mánuð í þessu til að sýna fólki að þetta sé fyrir alla, ekki bara konur eða þá sem eru að reyna að grennast. Við erum þarna 5 saman í þessu, ég, Eyjó, Jón Þór, Jói frændi og Hilmar á Kaffi Ak. Við ætlum allir að halda úti bloggsíðum um þetta allt saman svo fólk geti séð hvaða áhrif þetta hefur og hvaða árangri við erum að ná. Slóðin á mína síður er http://sigfusfossdal-powerburn.blogcentral.is/ og þar inni eru svo tenglar á hinar síðurnar. Endilega stoppið við og kynnið ykkur þetta. Þetta er prógram sem er hentar bæði í uppbyggingu og fitubrennslu og hefur verið að skila frábærum árangri hjá þeim sem hafa farið í það.
»
25.09.2009 18:02:52 / strongest
Já þá hefur maður látið ára gamlan draum rætast og opna sitt eigið gym. Gymmið er opið öllum að sjálfsögðu, þarna verða upphitunartæki og tækjasalurinn verður aðeins meira byggður upp af lóðum, handlóðum og stöngum en stóru líkamsræktarstöðvarnar á Akureyri. Hér geta allir fengið aðstöð og leiðsögn, og auðvitað einkaþjálfun ef menn vilja fara út í það. Við munum svo bæta við fleiri tækjum og bæta aðstöðuna enn frekar eftir því sem viðskiftavinirnir vilja. Því er mjög gott fyrir alla sem koma þarna og æfa þarna að láta mig eða starfsfólkið vita hvað þeim fynnst vanta, eða þurfa að bæta við. Það er góður andi í húsinu, og hefur þetta farið mjög vel af stað. Við erum staðsett í Tryggvabraut 22, 3 hæð, og skora ég á alla að koma og skoða sig amsk um. Formleg opnun verður 3. okt, en frítt er út september í salinn. Sé ykkur á staðnum KV Sigfús.
»
03.07.2009 17:48:48 / strongest
Ég ætla hér í góðu að stofna til illinda. Ég ætla að skora á 17 Norðlenska powermenn og 40 Íslenska powermenn af öðrum landshlutum að keppa á Evrópumótinu sem verður á Akureyri næsta sumar. Þá fá allir góðan fyrirvara, og verða ekki látnir í friði ef þeir "beila". Auðvitað eru til löglegar afsakanir en þær eru sko ekki margar.
Mig langar líka að þakka góð viðbrögð og almenna jákvæðni á það að mótið sé haldið hérna í höfuðstað Norðurlands. Hér kemur lestningin.
Sigfús Fossdal Ingibjörg Óladóttir Eyjólfur Unnarsson Kristinn Ari Hinriksson Jón Þór Ásgrímsson Sólveig Bjarnar Elvar Óskarsson Einar Birgisson Árni Freyr Árnason Jón Gunnarsson Alfreð Pálsson Guðmundur Pálsson Erlingur Guðmundsson Erlendur Helgi Jóhannesson Þórarinn Traustason Sunna Eir Haraldsdóttir Gísli Rúnar Víðisson
Þorvaldur Kristbergsson Yfirbolla Páll Logason Valdimar R. Valdimarsson Ingvar Jóel Ingvarsson Jón B. Reynisson Heiðar Geirmundsson Benedikt Magnússon Stefán Sölvi Pétursson Ásbjörn Ólafsson Guðjón Fjelsted Ólafsson Árni Freyr Gestsson Árni Freyr Stefánsson Gunnar Freyr Rúnarsson Hermann Haraldsson Kári Yfirköttur Elíson Fjölnir Guðmannsson Sunna Hlín Gunnlaugsdóttir Gemma Magnusson Svavar Smárason Jóhanna Eyvins Ísleifur Árnason Flosi Jónsson Friðrik Örn Sigurðsson Hörður Ingi Stefánsson yfirbassaleikari Ingi Freyr Bragason Páll Sigurðarson Sindri Geirsson Steinn Hermann Sigurðsson Ólafur Valur Guðjónsson Grétar Sigþórsson Sverrir Sigurðsson Bjarki Ólafsson Sigrjón Ólafsson Helgi Briem Úlfur Orri Stefánsson Jakob Snær Egilsson Bjarki Þór Sigurðsson Eggert Samúelsson Heimir Kjartansson Jóhann Gíslason Einar Örn Guðnason
Ef ég gleymi einhverjum skorið þá á þá fyrir mig. Rétt er þó að minna á að þetta er mót í Kraftlyftingum, Bekk og Réttstöðu, sem sagt þeir sem eru slæmir í hnjám, þið keppið á bekk, þið sem eruð slæmir í öxlum þið keppið þá bara í réttstöðu. Haha, þarna þurkaði ég út helmingin af afsökununum sem einhverjir hefðu gripið til hehe. En sjálf skráningin fyrir Íslendinga fer fram í gegnum stjórn ÍKF Metal, en þeir sjá um Ísland og Íslenska liðið, og senda svo skráningu inn þegar henni er lokið. Farið svo og takið á því hehe.
KV Fossdal.
ps. Gaman væri ef menn myndu skilja eftir comment þegar þeir hafa séð þetta til að staðfesta að áskorun sé móttekinn.
»
29.06.2009 15:15:01 / strongest
Þá er það orðið ljóst.
EM wpf á næsta ári verður haldið á AKUREYRI. Þetta verður geðveikt.
Ég stefni á að halda mótið í Íþróttahöllinni og vera þar með fysrsta flokkst upphitunaraðstöðu. Mótið stendur í 3 til 4 daga og er stefnan að reyna að halda lokahóf eftir mótið. Það er mikil vinna framundan en þetta verður magnað.
Ég hef sett það sem stefnu að ég vil fá amsk 40 lyftara frá Íslandi á mótið, enda ekki oft sem vona tækifæri bjóðast. Þar af vona ég að 10 til 15 þeirra geti verið heimamenn frá Akureyri. Fleiri eru auðvitað velkomnir, enda eigum við að mæta þarna með stórt lið í power, bekk og deddi og vinna allar greinar. Við erum stór þjóð í power og eigum að sýna það á heimavelli þarna.
Farið að skoða þetta, kv Fossdal.
»
28.03.2009 16:54:30 / strongest
Vá hvað ég sökka við að halda þessu bloggi úti orðið. Finnst samt gaman að sjá hvað það koma margir hingað á dag jafn vel þó ég nái ekki að uppfæra nema á tveggja mánaða fresti. En já ég fór sem sagt til USA og keppti þar með fínum árangri, með total uppá 405-320-347,5=1072,5 sem er personal best í deddi og totali. Ég vann flokkinn minn og varð þriðji á stigum. Sömu helgi var Íslandsmótið í bekk, og Bollan fékk hornið mitt til geymslu í eitt ár, en ætli ég reyni ekki að taka það af honum á því næsta, ef America cup verður ekki á sömu dagsettningu eins og í ár, því það er búið að bjóða mér og Valda báðum þangað. Annars er nóg framundan. Eins og ég hef áður talað um þá er HM wpf í Las Vegas, en svo hefur bæst við EM wpc í Finlandi í júní. Ég hef ákveðið að fara þangað og Ingibjörg með mér, til að keppa, til að kynnast Ano og Minnu betur en þau eiga Go Metal sem ég er með umboð fyrir hérna heim. Íslenska liðið ætlar sér mikið á HM í haust, en það verður samt erfitt því Rússar og Bandaríkjamenn, ásamt Írum og Bretum munu senda þrusu góð lið á mótið, en það verður ekkert gefið eftir. Ég, Bollan, Ingibjörg, Palli Fermeter, Valdi Kerfis, BIG BEN, Kári Köttur, Ingvar Ringo, Eyjó Krókó, Kiddi, Tóti Stallone og pottþétt margir fleiri sem ætla að fara. Þetta verður GEGGJAÐ. Ég ætla að setja geðveikina í gang og stefna á að beygja 455 (1000 pund) pressa 365 (800 pund) og dedda 365 (800 pund) eða 1185 kg (2600 pund) Sem væri þá í topp 10 totölum allra tíma í heiminum (held að Jani hafi verið í 11 sæti með 1180 og ég veit að þá á Siders líka 1180(Jani í 2ply og Siders í 1 ply)). Verið nú dugleg að gagnrýna hvað ég ætla mér mikið og segja mér að þetta sé ekki séns... ég lifi á því á æfingum að vita að fólk hefur ekki trú á mér  Valdi Kerfis hringdi í mig í nótt og bústaði andan hrikalega upp, og fann ég fyrir söknuði að vera ekki enþá að æfa með þessum hópi sem æfði saman í Silfur Sporti. Það voru hrikalega góðir tímar. Sjáumst hress á IKF Íslandsmótinu, kv FOSSDAL
»
08.03.2009 19:58:44 / strongest
Fyrir stuttu síðan Hafði Jóhanna Eiríks samband við mig og bauð mér að taka við umboðinu fyrir Metal á Íslandi, þar sem hún hafði hug á að hætta með það. Mér leist mjög vel á það og náðum við góðu samkomulagi um að ég tæki við af henni og er ég þegar kominn fullt samband við Minnu og Ano hjá Metal í Finlandi. Ég mun sjá um að pannta frá þeim vörur fyrir þá sem áhuga hafa, en þau verð sem ég hef uppá að bjóða ætla ég að hafa þannig að það verði ódýrara fyrir íslenska lyftara að pannta í gegnum mig en að fara að standa í því sjálfir. Best er að hafa samband við mig í gsm síma 8669049 eða jafnvel á emaili fossdal83@hotmail.com. Á síðunni http://www.gometal.com/ er hægt að sjá uppá hvað verið er að bjóða. Margir af bestu lyfturum heims nota vörur frá Metal, ég tók til dæmis sjálfur þyngstu lyftu Íslandssögunar á bekk í slopp frá þeim, og Benedikt Magnússon tók 440 lyftuna í réttstöðu sem var þyngstalyfta mannkynssögunar í deddi í réttstöðulyftubrók frá þeim.
Hafið það gott, með powerkveðju, Sigfús Fossdal.
»
22.01.2009 13:44:47 / strongest
Já þá er bara komið að því. Maður er að fara út eftir nokkra tíma. Er í Keflavík mjög tímanlega af því það spáði leiðinlegu veðri og ég var hærddur við að innanlandsflugið yrði kannski fellt niður þannig að ég fór fyr suður. Ringo kom á völlinn og skutlaði mér niður á BSÍ, og var bara nokkuð létt yfir kappanum. Mikill powerandi svífur nú yfir vötnum enda Íslandsmót ÍKF Metal um helgina þar sem amsk Bollan ætlar í bætingar og BIG BEN ætlar að elta kallinn yfir 300. Maður með skjóðu eins og Ben á bara ekki að eiga minna á bekk og er ég pottþéttur á því að hann flengi það. Svo eiga Bóndinn og Helga hans Valda Kerfis afmæli í dag, og Bónda durgurinn kominn í 50 árinn, eða bara við dauðans dyr.... ef árið væri svona í kringum 1500. Svo á morgun á Jóhanna formaður stórafmæli, en ég hugsa að ég sleppi því að telja árinn, enda er það víst ókurteisi þegar kvennfólk á í hlut. En já, Jóhanna er búin að vera í sambandi við Steve í LA, en hann heldur mótið. Hann segist vera spenntur að fá mig en ég efast um að hann sé jafn spenntur og ég yfir því að vera að fara þarna. Þetta er enginn smá umgjörð þarna og veit ég tildæmis að Scott Mendelson sem er einn besti bekkpressari heims verður þarna og að Jay Cutler verður við á sunnudeginum. Veit ekki hvort Jay ætli að sýna eitthvað en hann verður amsk tilbúin í myndatökur og eitthvað. Mótið er svona heldur miðsvæðis í borginni held ég, og er haldið við Staples Center sem er heima völlur meðal annars LA Lakers og LA Clippers í körfuboltanum. Hótelið er svona í svona 400 metra fjarlægð þannig að þetta er allt eins og best verður á kosið. Styrkleikinn á mótinu er mjög góður, um 5 eða 6 lyftarar sem taka pottþétt yfir tonnið og held að flestir þeirra ætli yfir 1050, en þeir eiga fyrir á bilinu 1020-1060, en eins og er á ég þyngsta totalið, en er líka þyngstur af þeim. Ég hef lítillega séð af þeim sumum á netinu og eru margir uppá bætingu ef dagurinn er réttur... sama með mig. Ég tel mig vel tilbúin í þetta en veit að þetta verður mjög erfitt, undirbúningurinn búin að vera svona upp og ofan, en nóg af styrk og slatti af reynslu. En eins og margir hafa bent á, ég á óvenju oft slæman undirbúning en næ svo mínu á mótinu.
En ég bið að heilsa í bili, takið á því um helgina strákar hér heima, það ætla ég að gera úti.
Kv Sigfús.
»
07.12.2008 19:30:42 / strongest
Vá ég skrifaði seinast í júlí.... ég er búin að vera með geri það á morgun sindomið hvað bloggið varðar. En já Dóri þetta er greinilega eini staðurinn sem þú getur fylgst með mér,,,,, þú ert náttúrulega ekki með msn er það nokkuð  En nóg er annars að frétta af okkur fyrir norðan. Ég ásamt Ingibjörgu, Jón Þóri, Sólveigu og Eyjó stofnuðum nýtt Aflraunafélag á Akureyri og ætlum að fara að gera eitthvað nýtt og leggja okkar að mörkum í að byggja upp aflraunir og kraftlyftingar á Akureyri. Við erum með nokkur mót í undirbúningi og ætlum okkur mikið. Í nóvember fórum við Ingibjörg ásamt stórum hópi Íslendinga til Vínar að keppa á HM WPF. Hópurinn átti almennt gott mót,en Ingibjörgu gekk ekki nógu vel þarna og féll úr. Hún náði þó að ná athygli manna sem sáu að þarna var klárlega sterkasta konan á svæðinu, og hafa menn sýnt því áhuga að hún keppi bæði í Bretlandi á Breskameistaramótinu og á America Cup sem haldið er í LA í USA. Ég átti hinsvegar góðan dag og kláraði 410,5 í beygjum og 330 bekk, og náði 1060 totali þó bestu tölur hefðu gefið 1080,5, en beygjurnar og bekkurinn komu í aukatilraunum, en það nægði mér til sigurs á stigum á mótinu. Mér var líka boðið á America Cup og erum við að vinna í því bæði að komast. Jóhanna er búin að vera í sambandi við Steve, mótshaldaran, sem vill ólmur að við komum, og kunnum við henni þakkir fyrir, enda nóg að gera hjá okkur í undirbúningi og æfingum, þannig að fínt að fá aðstoð í þessu. Hann bauð líka Palla og Bollunni en þeir hafa skilst mér báðir sagt nei. Þetta er stórt mót þarna í USA og er það haldið á stórri fitnesshelgi sem 18.000 manns sóttu í janúar á þessu ári, og segja þeir næsta mót verða enn stærra. ( http://thefitexpo.com/ heimasíða helgarinnar) Þetta er allt mjög spennandi en svo er að sjálfsögðu Las Vegas á næsta ári þar sem HM WPF verður það árið, sem verður náttúrulega geggjað. Hér er umfjöllun og video af lyftunum mínum í Vín, skrifa svo eitthvað meira seinna. Take care, Sigfús. http://www.powerliftingwatch.com/node/9743
»
27.07.2008 17:15:39 / strongest
Er ekki að verða kominn tími á að gefa eitthvað frá sér um það sem af er liðið sumri. Eins og ég talaði ekki lítið um er ég búin að fara í 3 utanlandsferðir og vestur á Víkinginn. Þetta er búið að vera frábært. við byrjuðum á því að fara til Kanada með hópi Metal mola. Það var snilld enda um 17 manna hópur þarna saman að keppa og hafa gaman. Við gistum hjá Völundi ofsa, Húsvíking þarna úti, og sá hann um mótið og í raun mest allt sem snéri að ferðalaginu innan Kanada. Við skoðuðum CN turninn í Toronto, Niagrafalls, og fórum skoðunar ferð um Montreal. Ekki nóg með það hve vel Völli tók á móti okkur heldur borgaði hann flugið fyrir mig þar sem ég var fyrstur Íslendinga til að taka yfir 300 á bekk, með 302,5 lyftu sem ég tók á mótinu þarna úti. Við unnum Kanadamennina, sem voru hressir strákar, sem tóku vel á móti okkur. Svo fórum við Ingibjörg beint til Þýskalands, þar sem við kepptum á EM wpf í kraftlyftingum með góðum árangri. Ingibjörg varð Evrópumeistari með 2 heimsmet, en ég varð Evrópumeistari með eitt heimsmet og vann opna karlaflokkinn á stigum líka. Mótið var haldið í Forchheim sem er bær sem sögur eru til af síðan árið 805. Þar var margt í gömlum stíl og virkilega flott þó bærinn væri lítill. Við fórum líka skoðunarferðir til Nurmberg sem er alveg hreint frábær borg, alveg ótrúlega falleg. En eitt af því sem er þó eftirminnilegast eru þær frábæru móttökur sem við fengum af mótshöldurum og öðrum keppendum. Við áttum mest samneyti með Breskaliðinu og fengum hellings aðstoð og stuðning frá þeim, og eigum skuldum þeim miklar þakkir fyrir. Svo í byrjun júlí var ferð minni heitið til ungverjalands á aflraunamót og það var mikil upplifun, ég varð í 7 sæti af 12 sem er kannski ekkert frábær árangur, en ég var sáttur við flestar greinar og bara nokkuð sáttur, enda ný kominn úr miklum power gír. En mótið var spes af því líka að aðra eins spillingu hef ég aldrei séð. Sá sem var vís aðalstirkaraðilinn á mótinu, og sonur hans voru að keppa. Öllum reglum var hent út um gluggan eða þær brotnar til að hampa þeim feðgum. Það fara of mörg orð í að útskýra það hvernig það fór fram svo ég sleppi því að sinni en að maður eins og Laszlo Fekete, sem búin er að keppa síðan amsk 1988, og hefur verið í úrslitum sterkasta mans heims amsk 3 sinnum, skuli bæði haga sér svona, og vilja reyna að vinna með svindli sem þessu kemur mér ótrúlega á óvart, og ber ég litla virðingu fyrir honum eftir þetta. En engu að síður kynntist ég þarna mörgum góðu strákum og ferðin var skemmtileg. Til dæmis kynntist ég þarna Adam Keep sem ætlar í framhaldi að þessu að koma til Akureyrar um Versló og keppa á Aflraunameistara Íslands. Að lokum var það ferðin á Vestfjarðar víkinginn. Við, Ingibjörg, Elvar og Guðrún, flugum til Ísafjarðar, og keyrðum með Verinu og Loggnum til Hólmavíkur þar sem mótið hófst. Big G, Palli, Stebbi, Heysi og Orri voru þarna að keppa og var þetta frábært mót. Ég átti þarna mitt besta aflraunamót frá upphafið og var jafn Big G í öðru til þriðja sæti. Næsta mót verður svo um Versló, og þeir sem hafa staðfest komu sína eru Palli, ég, Jón Þór, Adam, Orri og Stebbi og Big G skiljast mér að séu spurningarmerki en sem komið er. Þetta verður snilldar mót, og verður gaman að keppa í fyrstaskifti á heimavelli í aflraunum. Jafnframt koma Bollan, Maggi, Loggurinn, og hugsanlega Valdi Kerfis, ásamt fleirum til að aðstoða okkur og vera með í andanum. Svo er hugsanlega í startholunum að stofna aflraunafélag á akureyri, til að halda utan um að koma upp tækjum til að æfa með og halda mót hérna. Framtíðin er björt og ekkert nema hamingja. En já þetta er það sem hefur verið að gerast og nóg framundan. Bið að heilsa í bili. Kv, Sigfús.
»
05.06.2008 13:33:41 / strongest
Það er sko nóg að gera í sumar og það fer allt að bresta á. Eftir 8 daga eða föstudaginn 13 júní förum við Ingibjörg í góðum hópi til Kanada að keppa í kraftlyftingum. Undirbúningur hjá okkur báðum hefur gengið ótrúlega vel, og erum við mjög jákvæð á þetta. Við verðum í Kanada í viku og skoðum margt og gerum mikið. Fyrir áhugasama er hérna góð útlistun á vikunni sem við verðum þar; http://kraftaheimar.net/?p=803#comments enda er ekki lítil tilhlökkun í gangi. Þann 20 júní er svo haldið til keflavíkur og þaðan beint áfram til Frankfurt í Þýskalandi þar sem við lendum 21 júní og förum til Forchheim þar sem EM wpf er og ætlum okkur að keppa þar líka. Þar erum við í 9 daga eða til 30 júní en Ingibjörg keppir einmitt á 24 ára afmælisdaginn sinn þannig að það verður stór og skemmtilegur dagur hjá henni, enda gott útlit fyrir heimsmet í nokkrum greinum hjá henni. Sjálfur var ég að bekkpressa 310 á æfingu, ekki kannski gild lyfta en nokkuð létt engu að síður; http://kraftaheimar.net/?p=801#comments . Svo ákvað ég í fyrra dag að skella mér til Ungverjalands 4-6 júlí að keppa á móti sem tengist International Strongman events eða heitir það, er ekki alveg með það á hreinu hehe. Ungverjaland er ótrúlega fallegt og ákvað ég að slá til þegar mér stóð það til boða. Svo í júlí erum við að spá í að setja upp 5 greina mót um Sterkasta Mann Norðurlands þar sem topp 3 keppendum yrði formlega boðið að keppa á Aflraunameistara Íslands sem við erum að með um Verslunnarmannahelgina á Akureyri, en þetta er allt í skoðun. En ef þið vitið um einhverja hrausta norðan menn sem ættu að keppa endilega bendið þeim á að tala við mig, því fleiri, því betra. En já, það er sko nóg að gera, og stefnir í æðislegt sumar. Njótið veðursins, og hafið það gott, kv Sigfús.
»
26.05.2008 17:32:34 / strongest
Það er pottþétt ekki öll vitleysan eins. Ég fór um helgina suður að keppa á IFSA Sterkasta manni Íslands. Um morguninn þegar ég vaknaði fannst mér ég eitthvað skrítinn í framan, og þegar ég var að tannbursta mig þá slefaði ég þegar ég ætlaði að spíta. Allan daginn leið mér hálf undarlega í vörunum og hægra munn vikinu. Um kvöldið áttaði ég mig á því að ég gæti ekki haldið hægra auganum lokuðu en vinstra opnu á sama tíma þó ég gæti gert þetta á hinn veginn. Svo í gær tók ég eftir því að þegar ég brosti hreifðist varla hægra munn vikið bara það vinstra. Ég hringdi í Fjölni sem sannaði vitneskju sína í læknanáminu með því að segja mér strax nafnið á einhverjum sjúkdóm sem þetta passaði við. Ég fór því næst upp á FSA til að fá eitthvað við þessu. Þar fór ég í klukkutíma tékk á því hvort þetta væri nokkuð heilablóðfall, en eftir þá skoðun sagði læknirinn að þetta væri það sem hann grunaði strax. Ég man ekki hvað það heitir og er Fjölnir hér með beðinn um að commenta með því svari  En sem sagt, einhver taug í hausnum á mér hefur bólgnað út af veirusýkingu og þar sem það er þraungt um hana þá hættir hún að skila nógu vel frá sér skipunum og ég hef ekki fullt vald á hægri hlið andlitsins. Ég fékk tvenn lyf og ÆTTI að vera góður eftir 3 vikur, það er þó ekki 100% en allar líkur á því. Ég ætla sko rétt að vona það. En eins og áður sagði keppti ég í smáralindinni og endaði svona full neðarlega, en nenni ekki að vera að svekkja mig á því. Fannst ég vera að gera svipaða hluti og í fyrra, en strákarnir eru bara í fanta formi. Palli sérstaklega sem hrifsaði annað sætið, og stóð heldur betur í Stebba í deddinu með því að vera jafn honum með 8 reps, sem er frábært hjá honum. Palli er undra barn og á eftir að ná miklum hæðum. Annars er það bara Kanada framundan og svo Þýskaland, og geri ég þar væntingar um 1020 total og 300+ bekk, en eins og sumir hafa séð, er ég búin að taka 302,5 á æfingu á bekknum,,, SKÍT LÉTT,,, eða eitthvað  Svo ætla ég að kíkja suður eftir viku og taka seinasta bekkinn með Fjölni, en hann hefur það verkefni fengið að sjá um mig í sportinu, og aðstoða mig við allt,,,, nema kannski að skeina mig,,,,, get enþá séð um það sjálfur, hehe. Ingibjörg er í góðu formi og miklum bætingum, og ef ég fer ekki að taka mig á, á hún eftir að verða miklu skærari stjarna en ég nokkurn tíman í þessu sporti, enda þvílíkur ákafi hjá henni. Annars er bara vinna og æfingar fram að sumar fríi og svo farið út þann 13 júní, og komið heim 30 júní. Löng og frábær ferð, og mikið af skemmtilegu fólki að fara memm í amsk fyrri hlutan. Látum þetta gott heita í dag, verðum í spotta, bið að heilsa, Fossdal.
»
03.05.2008 12:54:11 / strongest
Eitthvað hefur heilsunni verið illa við mig undanfarið og er ég búin að vera heima með í maganum og hita í tæpa viku. Reyndar bara hita í 2 eða 3 daga en mér er sama. Náði samt fínni æfingu á mánudaginn en þegar ég ætlaði á æfingu á þriðjudag sló mér hart niður og er búin að vera alveg óvígur í 4 daga. Ég viktaðist 142,5 kg í gær morgun eða 10,5 kg léttari en 2 vikum fyrir ÍKF Metal mótið um daginn. Þetta er svona full langt gengið enda ekki langt í næsta mót, eða 14 eða 15 júní í Kanada. EN við látum svona bull ekki á okkur fá og höldum bara áfram næsta mánudag þar sem frá var horfið og höldum bætinga formúlunni áfram. Stefnan er sett á 1020 í Kanada eða á EM í þýskalandi tveimur vikum seinna, helst bæði. Annars er lítið að frétta. Elvar á ekki nema tvo mánuði eftir í leikskóla og fer þá, eins og lög gera ráð fyrir, í grunnskóla í haust. Guð hvað tíminn er fljótur að líða. Mér finnst eins og það hafi verið í gær sem hann byrjaði hjá dagmömmu. Byrjaði á leikskóla. Lærði að labba, fór að tala og svo margt annað. Hann missti fyrstu tönnina í haust og ég fékk áhyggjur. Var hann ekki of ungur til að missa tennur? Nei litla barnið mitt er að verða stórt. Og hvað segir það þá um mig? Hmmmm, spurning.
»
27.04.2008 18:12:36 / strongest
Ég man alltaf þegar ég flutti suður 2006. Ég var nýbúin að fá einhverja skíta vinnu hjá Öryggismiðstöðinni, hafði enga vinnu fegnið fyrir norðan og ákvað að gefa Reykjavík annan séns. Ég var ekki kominn með neitt húsnæði, enda rándýrt að leigja. Úr varð að ég fékk að vera hjá Hemma og Heiðu í litlu íbúðinni þeirra í Laugarteignum. Ég ætlaði ekki að vera þeim byrgði lengi og ætlaði mér að finna mér pláss sem fyrst. Það dróst á langinn og þau ítrekuðu ævinlega að mér lægi ekkert á, ég gæti verið eins lengi og ég vildi hjá þeim. Svo á þeim tíma sem ég bjó hjá þeim fór ég á NM í kraftlyftingum í Danmörku og NM í bekkpressu í Noregi. Þau komu með og hittumst við í Oslo og urðum samferða til Bergen þar sem mótið fór fram. Þar aðstoðaði Hemmi mig í sloppinn og Heiða tók myndir. Þegar upp var svo staðið og ég fór að búa með Ingibjörgu um haustið hafði ég búið inn á þeim í 6 mánuði. Sá tími flaug ótrúelga hratt og kann ég þeim miklar þakkir fyrir að vera vinir í raun, og þegar á þarf að halda. Ef þau vita það ekki nú þegar, þá er þetta vinir, sem ég myndi gera allt til að hjálpa, allt til að endurgreiða þeim það sem þau gerðu fyrir mig.
Það ættu ALLIR að eiga vini eins og Hemma og Heiðu. Takk einu sinni enn fyrir mig og mína.
»
23.04.2008 12:53:19 / strongest
Ef menn haga sér eins og asnar, og brjóta lög, þá á lögreglan að taka á því. Hún gerði það loksins í dag og eiga sóma skilið fyrir það. Vörubílstjórar hafa fyrir löngu gengið of langt, í eigin hagsmuna vinnuaðferðum. Ekkert að því að skoða hvíldar ákvæðið þeirra, en ef álögur á bensín lækka þá þurfum við, launafólkið að borga það einhversstaðar annarsstaðar í kerfinu og er ég mikið á móti því að þeir fái þarna að stela peningunum okkar, við erum nú þegar með lægstu álögur af okkar nágranna þjóðum. Lækkið frekar skatta á láglaunafólk. Ríkisstjórninn stendur sig líka vel í því að láta ekki þessa vitleysinga vaða yfir sig. Pís át.
»
02.04.2008 17:44:43 / strongest
Það er ekki á litlu búið að ganga seinustu vikuna. Á fimmtudaginn í seinustu viku missti ég alla matarlist og á föstudeginum fékk ég í magan, á sunnudaginn ældi ég og varð ekki góður fyrr en í gær þegar ég var búin að léttast um 5 kíló. Það ofan á það að bakið var eitthvað að bögga mig. En ég er byrjaður að éta þetta til baka og held að bakið sé orðið gott. Er núna 148,5 kíló og stefni á að vera ekki léttari en 150 kíló til að ná góðum tölum um helgina. Get ekki beðið eftir að komast í átök, við frúin ætlum að jarða þetta, og hafa gaman af. Ég ef búin að taka fyrir mótið tölurnar 370-285-330 í misfallegum lyftum, en byrja öruggt og spila þetta save en af miklum hrikaleg heitum.
Þetta verður snilld, hlakkar til að sjá ykkur öll, kv Sigfús.
»
Síður: 1 2 3 ... 7
|
Heimsóknir
Í dag: 10 Alls: 58541
|